Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 20. júní 2021 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Partey langar að skipta um númer
Mynd: Getty Images
Thomas Partey kom til Arsenal frá Atletico Madrid síðasta sumar en stuðningsmenn Arsenal hafa enn ekki séð það besta frá leikmanninum.

Hinn 28 ára gamli landsliðsmaður Ghana var keyptur fyrir 45 milljónir punda og voru stuðningsmenn og sérfræðingar sannfærðir um að arftaki Patrick Viera væri loksins mættur. Hann hefur ekki alveg staðist undir því þó svo hann hafi átt góðar frammistöður en meiðsli hafa sett smá strik í reikninginn.

Hann bar númer 18 aftan á treyjunni sinni á síðasta tímabili en hann vildi fá númer 5. Sokratis Papasthadopulus var númer 5 en samningi hans var rift við félagið í janúar og ætlar Partey því að fá númerið fyrir næstu leiktíð.

Nú þegar hann hefur leikið heila leiktíð á Englandi munu stuðningsmenn Arsenal búast við því að hann springi út á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner