Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. júní 2022 15:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Southampton hefur samband við Liverpool vegna Williams
Mynd: Getty Images
Southampton hefur samkvæmt heimildum Sky Sports haft samband við Liverpool þar sem félagið hefur áhuga á að fá Neco Williams í sínar raðir.

Williams er hægri bakvörður og hefur hollenska félagið PSV einnig sýnt honum áhuga. PSV vill fá hann á láni en líklegra er að Southampton vilji kaupa leikmanninn.

Fulham er hins vegar talið líklegast til að krækja í Williams og þá hefur Nottingham Forest einnig áhuga.

Williams var á láni hjá Fulham í Championship deildinni seinni hluta síðasta tímabils og hjálpaði liðinu að enda í efsta sæti og tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni.

Williams þekkir einnig vel til Steve Cooper hjá Forest þar sem Cooper var í þrjú ár þjálfari í akademíu Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner