Fotbolti.net
20.07.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Laporta: Alvarez er óhamingjusamur

Laporta: Alvarez er óhamingjusamur
Canon

Mynd: EPA

Joan Laporta forseti Barcelona hefur verið í orðastríði við Miguel Ángel Gil, framkvæmdastjóra Atlético Madrid, vegna áhuga Börsunga á argentínska framherjanum Julián Alvarez.
Julián Alvarez er ekki til sölu
TENGT EFNI

Julián Alvarez er ekki til sölu

Alvarez er lykilmaður í sterku liði Atlético en vill skipta yfir til Barcelona, sem er félag drauma hans. Börsungar lögðu fram 130 milljón evru tilboð í Alvarez sem Atlético hafnaði og lét leikmaðurinn ummæli falla um að vilja skipta um félag.

Í kjölfarið létu Laporta og Gil ýmis ummæli falla í fjölmiðlum, þar sem Gil sakar forseta Barca um að hafa freistað Alvarez án þess að vera búið að ná samkomulagi um kaupverð við Atlético.

„Stórt félag getur ekki leyft sér að vera með óhamingjusama leikmenn í hópnum. Þetta er eitthvað sem við myndum aldrei líða í Barcelona," segir Laporta.

„Við lögðum fram mjög gott tilboð í Julián Alvarez sem rennur út um næstu mánaðamót. Það er aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni, en þetta væri ekki í fyrsta sinn sem leikmaður kemur hingað þrátt fyrir ummæli í fjölmiðlum um annað. Ég vil ekki nefna dæmi."

Laporta virðist trúa því að það séu góðir möguleikar á að fá Alvarez til liðs við sig þrátt fyrir skýra höfnun frá Atlético.

Framkvæmdastjórinn ósáttur með Joan Laporta
TENGT EFNI

Framkvæmdastjórinn ósáttur með Joan Laporta

Laporta: Alvarez er óhamingjusamur
Canon

Mynd: EPA

Laporta: Alvarez er óhamingjusamur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.