Fotbolti.net
20.07.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson

Kroos eftir úrslitaleikinn: Fótboltinn vann

Kroos eftir úrslitaleikinn: Fótboltinn vann
Canon

Mynd: EPA

Toni Kroos, sem var einn af allra bestu miðjumönnum heims í rúman áratug, var ánægður með niðurstöðuna í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.
Kroos segir fyrsta markið skipta öllu - „Þá geta þeir gleymt þessu“
TENGT EFNI

Kroos segir fyrsta markið skipta öllu - „Þá geta þeir gleymt þessu“

Spánn hafði betur gegn Argentínu eftir hundleiðinlegan leik þar sem Argentínumenn einbeittu sér að varnarleik og áttu sína fyrstu marktilraun þegar komið var í framlengingu.

Ferran Torres kom inn af bekknum og skoraði eina mark leiksins í framlengingu, svo lokatölur urðu 1-0 fyrir Spán sem er þar með ríkjandi heims- og Evrópumeistari.

„Fótboltinn vann," skrifaði Kroos á samfélagsmiðlinum X eftir lokaflautið. Hann var, líkt og margir aðrir áhorfendur, augljóslega ósáttur með nálgun Argentínu í leiknum.

Kroos er 36 ára gamall og lagði takkaskóna á hilluna fyrir tveimur árum. Hann vann Meistaradeild Evrópu sex sinnum á ferlinum og heimsmeistaramótið einu sinni, auk þess að vinna alla mögulega titla í Þýskalandi og á Spáni.



HM: Spánn heimsmeistari í annað sinn eftir sigur í framlengingu
TENGT EFNI

HM: Spánn heimsmeistari í annað sinn eftir sigur í framlengingu

Kroos eftir úrslitaleikinn: Fótboltinn vann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.