20.08.04 - 05:45
Elvar Geir Magnússon
Sicignano til Lecce (Staðfest)




Lecce hefur loksins fengið markvörðinn Vincenzo Sicignano frá Parma eftir viðræður sem stóðu yfir í nokkra mánuði. Sicignano spilaði seinni hluta síðasta tímabils með Lecce á lánssamningi en er nú orðinn formlegur leikmaður Lecce, hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Parma er nú í leit að varamarkverði fyrir Sebastien Frey fyrst liðið hefur misst hinn þrítuga Sicignano á bekknum en þar var hann þekktur fyrir góðan húmor. Þar kemur Gianluca Berti hjá Palermo sterklega til greina en þjálfarinn Silvio Baldini þjálfaði hann áður hjá Palermo og Empoli.
