20.08.04 - 11:57
Magnús Már Einarsson
Fuller til Portsmouth (Staðfest)

Fuller byrjaði feril sinn með Jamíkaliðinu Tivoli Gardens.


Fuller byrjaði feril sinn með Jamíkaliðinu Tivoli Gardens.

Portsmouth hefur fengið framherjann Ricardo Fuller frá Preston. Fuller mun fá laun fyrir hvern spilaðan leik hjá Portsmouth en hann var nálægt því að ganga til liðs við liðið fyrr í sumar á tvær milljónir punda en þá féll hann á læknisskoðun þar sem að hann hefur átt við hnémeiðsli að stríða. Fuller sem að er 24 ára kom til Preston frá Hearts fyrir tveimur árum og skoraði alls 31 mark í 63 leikjum með Preston.
