Fotbolti.net
20.08.19 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Sláandi tölfræði Lingard - Framlag í einum mánuði af tólf

Erfiðir tímar.

Erfiðir tímar.

Canon

Mynd: Getty Images

Margir stuðningsmenn Manchester United hafa kallað eftir því að Jesse Lingard stígi upp í sóknarleik liðsins og leggi meira að mörkum.
Duncan Alexander birti í gær tölfræði frá síðustu tólf mánuðum sem Lingard hefur spilað leiki í ensku úrvalsdeildinni.

Í desember í fyrra var Lingard í stuði þegar hann skoraði fjögur mörk og lagði upp tvö.

Þess fyrir utan hefur Lingard spilað í ellefu mánuði af tólf án þess að skora eða leggja upp mark í ensku úrvalsdeildinni!

Lingard spilaði 81 mínútu í gær gegn Wolves en náði ekki að komast á blað þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.