Fotbolti.net
20.09.04 - 12:21
Magnús Már Einarsson

Camacho hættur hjá Real Madrid (Staðfest)

Camacho hættur hjá Real Madrid (Staðfest)
Canon
Jose Antonio Camacho stjóri Real Madrid hefur sagt upp störfum og hefur Mariano Garcia Remon aðstoðarmaður hans verið ráðinn tímabundið í hans stað á meðan er verið að leita að nýjum stjóra. Camacho sem að er 49 ára ákvað að segja upp eftir 1-0 tap Real gegn Espanyol í deildinni á laugardag og 3-0 tap gegn Bayern Leverkusen í síðustu viku.
"Ég vil tilkynna að stjórn Real Madrid hefur ákveðið að samþykkja uppsögn Jose Antonio Camacho, þótt hann muni halda áfram að vinna innan félagsins," sagði Florentino Perez forseti Real Madrid á blaðamannafundi nú í hádeginu.

"Ég vil líka tilkynna að við höfum ákveðið að leggja allt okkar traust á (aðstoðarmann hans) Mariano Carcia Remon, sem nýja þjálfarann. En hann hefur sannað tryggð sína við félagið."

Camacho entist því aðeins í fjóra mánuði í starfi hjá Real Madrid en hann tók við af Carlos Queiroz síðastliðið vor. Þetta er í annað sinn sem að Camacho stjórnar Real Madrid og í bæði skiptin voru það stutt stopp hjá þessum fyrrum landsliðsþjálfara Spánverja. Árið 1998 hætti Camacho eftir 23 daga í stjórastólnum en þá lenti hann í rifrildi við Fernando Sanz forseta um það hvort að Carlos Lorenzana þjálfari ætti að fá samning eða ekki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.