20.09.04 - 13:53
Magnús Már Einarsson
Ormerod lánaður til Leeds (Staðfest)




Southampton hefur lánað sóknarmanninn Brett Ormerod til Leeds. Ormerod sem að er 27 ára hefur ekkert fengið að spreyta sig með Southampton á þessari leiktíð og verður hann í láni hjá Leeds í mánuð til að byrja með.
James Beattie, Peter Crouch, Kevin Phillips og Marian Pahars eru allir á undan Ormerod í goggunarröðinni hjá Southampton.
