Maastricht 3 - 3 Jong PSV
Kristófer Ingi Kristinsson skoraði í kvöld tvö mörk fyrir Jong PSV í jafntefli liðsins gegn Maastricht í hollensku B-deildinni.
Kristófer kom inn á 61. mínútu þegar Maastricht var nýkomið í 3-0. Kristófer minnkaði muninn á 66. mínútu og jafnaði metin með sínu öðru marki á 83. mínútu.
Kristófer er á láni hjá PSV frá Grenoble. Jong PSV Er með fjórtán stig, í 14. sæti eftir ellefu leiki. Kristófer hefur skorað fjögur mörk á leiktíðinni.
Sjá einnig:
Holland: Ekkert fær stöðvað Elías Má - 10 mörk í 8 leikjum
Athugasemdir