Fotbolti.net
21.01.10 - 09:35
Alexander Freyr Tamimi

Danny Simpson í Newcastle (Staðfest)

Danny Simpson (lengst til vinstri) mun ekki snúa aftur til Man Utd.

Danny Simpson (lengst til vinstri) mun ekki snúa aftur til Man Utd.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur gengið frá kaupunum á Danny Simpson leikmanni Manchester United en þessi 23 ára leikmaður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við þetta topplið ensku Championship deildarinnar.
,,Við erum himinlifandi með að hafa gengið frá kaupunum á Danny,\" sagði Chris Hughton stjóri Newcastle.

,,Hann er leikmaður sem hefur verið með okkur frá því í sumar og hefur leikið lykilhlutverk hjá okkur fyrri helming tímabilsins.\"

,,Danny er mjög vinsæll í búningsklefanum og það tók hann alls enga stund að aðlagast. Hann var alltaf leikmaður sem við vildum halda hjá félaginu og hann vildi ólmur vera áfram.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.