21.01.10 - 10:24
Magnús Már Einarsson
Helgi Valur Daníelsson til Hansa Rostock (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Þýska félagið Hansa Rostock hefur keypt íslenska landsliðsmanninn Helga Val Daníelsson frá Elfsborg í Svíþjóð.
Helgi Valur er búinn að standast læknisskoðun hjá Hansa Rostock og skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við félagið en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans við Fótbolta.net í dag.
Samningaviðræður Hansa Rostock og Elfsborg hafa verið lengi í gangi en nú er allt klappað og klárt.
Helgi Valur, sem er 28 ára, hefur leikið með Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni undanfarin tvö ár en hann lék áður með Öster í tvö ár.
Hann er annar Íslendingurinn sem gengur í raðir Hansa Rostock í vikunni en Garðar Jóhannsson hefur einnig samið við félagið.
Hansa Rostock er sem stendur í þrettánda sæti í þýsku fyrstu deildinni en liðið féll úr Bundesligunni árið 2008.