Fotbolti.net
21.02.20 - 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Birkir byrjaði í tapleik gegn Napoli

Ítalía: Birkir byrjaði í tapleik gegn Napoli
Canon

Mynd: Getty Images

Brescia 1 - 2 Napoli
1-0 Jhon Chancellor ('26)
1-1 Lorenzo Insigne ('49, víti)
1-2 Fabian Ruiz ('54)
Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Brescia sem tók á móti Napoli í ítalska boltanum í dag.

Miðvörðurinn Jhon Chancellor gerði eina markið í bragðdaufum fyrri hálfleik. Hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu Sandro Tonali.

Napoli byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og skoraði Lorenzo Insigne örugglega úr vítaspyrnu skömmu áður en Fabian Ruiz kom gestunum yfir með glæsilegu marki.

Ruiz fékk boltann fyrir utan vítateig og sneri knöttinn í samskeytin með frábæru skoti.

Meira var ekki skorað og er Napoli komið upp í sjötta sæti, með 36 stig eftir 25 umferðir.

Brescia er sem fyrr í fallsæti, sjö stigum frá öruggu sæti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio8+1122
2Inter7+1219
3Roma8+1318
4Como8+717
5Milan7+715
6Frosinone7+413
7Torino8+213
8Cagliari8-313
9Napoli8+311
10Juventus7+111
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma8-104
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.