Fotbolti.net
21.02.21 - 16:00
Aksentije Milisic

England: Níundi útisigur Leicester kom gegn Villa

England: Níundi útisigur Leicester kom gegn Villa
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Aston Villa 1 - 2 Leicester City</b>
0-1 James Maddison ('19 )
0-2 Harvey Barnes ('23 )
1-2 Bertrand Traore ('48 )

Aston Villa og Leicester áttust við í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikið var á Villa Park í Birmingham.
Gestirnir frá Leicester byrjuðu betur og á 19. mínútu kom James Maddison liðinu yfir. Hann fékk þá sendingu frá Harvey Barnes og skaut laglegu skoti í stöngina og inn.

Einungis fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Barnes forystu gestanna. Emiliano Martinez varði þá boltann út í teiginn og þar var Barnes mættur og kláraði færið vel upp í þaknetið.

Staðan var 0-2 í hálfleik en Villa mætti vel út í síðari hálfleikinn og minnkaði Bertrand Traore muninn og gaf þar með heimamönnum von.

Þetta reyndist hins vegar vera síðasta mark leiksins. Aston Villa sótti töluvert en án þess að ná að skapa sér almennileg marktækifæri. Níundi útisigur Leicester á tímabilinu staðreynd og liðið er nú komið í annað sæti deildarinnar.

Aston Villa er í áttunda sætinu. Jack Grealish, fyrirliðið liðsins, verður frá meiðsla í um mánuð.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.