Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 21. febrúar 2022 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hildigunnur Ýr æfði hjá dönsku meisturunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, dvaldi í síðustu viku við æfingar hjá danska félaginu HB Köge.

HB Köge var danskur meistari í fyrra og í riðlakeppni Meistaradeildarinnar fyrir áramót og er því um öflugt lið að ræða.

Hildigunnur Ýr tók þátt í æfingum og lék tvo leiki með liðinu á meðan dvöl hennar stóð. Í færslu Stjörnunnar segir að Hildigunnur hafi staðið sig vel

Hildigunnur er nítján ára sóknarmaður sem mun æfa með U19 landsliðinu í þessari viku.

Hún hefur skorað fjórtán mörk í 39 leikjum í efstu deild, þar af átta mörk í sautján leikjum á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner