„Mér fannst þetta mjög góður leikur að mörgu leyti og góð ákefð. Ég held að það hafi verið ágætis skemmtun að horfa á þetta uppi í stúku,“ sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar eftir 3-1 tap gegn Víkingum í úrslitaleik Bose mótsins í Miðgarðinu.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 3 Víkingur R.
Stjörnumenn gerðu margar breytingar í dag og voru duglegir að rótera liðinu á meðan Víkingar héldu sig við sitt lið út leikinn, hjálpaði það Víkingum meira í gegnum leikinn?
„Það eru kostir og gallar við hvort tveggja, við fáum líka orku inn en það riðlast aðeins. Þeir kannski fá það ekki en halda skipulaginu. Heilt yfir fannst mér þetta góður leikur og það eru augnablik sem skera úr, ég er ekki ánægður að fá þessi þrjú mörk sem við fáum á okkur.“
Hvernig líst Jökli á liðið og hópinn daginn í dag þegar stutt er í fyrsta leik í Bestu deildinni?
„Mér líst mjög vel á liðið núna, það hefur verið mikill stígandi hjá okkur yfir veturinn og mjög góð heildarmynd af liðinu og hópnum. Ég held að þeir sem hafi fylgst með okkur í vetur hafi séð stíganda og hafi séð okkur spila vel. Núna fínstillum við aðeins og svo erum við bara klárir.“
Mun Stjarnan styrkja sig eitthvað fyrir Bestu deildina eða treystir Jökull hópnum eins og hann er núna?
„Ég treysti hópnum mjög vel eins og hann er núna. Það yrði eitthvað mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar.“
Hver eru markmið Stjörnunnar komandi inn í Bestu deildina?
„Við förum inn í þetta mót til að keppa um allt. Auðvitað erum við að spila við lið sem vinnur FH í hádeginu 3-0 og vinnur okkur 3-1 í dag. Við teljum okkur geta keppt á toppnum og við ætlum að gera það,“ sagði Jökull að lokum.
Viðtalið við Jökul má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir






















