banner
   lau 21. maí 2022 06:00
Victor Pálsson
Guendouzi vonar að Saliba fari ekki til Arsenal
Mynd: Getty Images

Matteo Guendouzi, fyrrum leikmaður Arsenal, vonar að William Saliba snúi ekki aftur til enska liðsins í sumar.


Saliba er í láni hjá Marseille þar sem Guendouzi spilar og hafa þeir átt mjög gott tímabil saman í röðum franska félagsins.

Möguleiki er á að Arsenal vilji notast við Saliba á næstu leiktíð en Guendouzi mun gera sitt til að reyna að halda þessum fína leikmanni.

Saliba hefur enn ekki fengið sénsinn hjá Arsenal síðan hann kom til félagsins frá Sty. Etienne árið 2019.

Síðan þá hefur Saliba spilað fyrir St. Etienne, Nice og nú Marseille á láni. Guendouzi mun þá yfirgefa Arsenal endanlega í sumar.

„Ég vona innilega að William verði hér áfram. Hann er að eiga frábært tímabil," sagði Guendouzi.

„Hann á allt skilið sem hann hefur fengið. Hann er frábær náungi utan vallar og hefur spilað marga mjög góða leiki."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner