Fotbolti.net
19.05.26 - 12:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Árni Marinó ristarbrotinn og ÍA kannar möguleika á neyðarskiptum

Árni Marinó ristarbrotnaði gegn Þór.

Árni Marinó ristarbrotnaði gegn Þór.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

ÍA hefur orðið fyrir áfalli því í gær kom í ljós að Árni Marinó Einarsson, markvörður liðsins, er ristarbrotinn og verður frá næstu 6-8 vikurnar vegna meiðsla.

Árni meiddist seint í fyrri hálfleik gegn Þór á sunnudag, en harkaði af sér út leikinn og hjálpaði ÍA að landa sigri. Hann var aðeins furðulegur í hornspyrnumarki Þórsara í leiknum og það vakti athygli að hann tók ekki markspyrnur í seinni hálfleiknum, og var það vegna meiðslanna.
Útskýrir hvernig hann komst upp úr dimmum dal - „Get ekki þakkað Halldóri nóg"
TENGT EFNI

Útskýrir hvernig hann komst upp úr dimmum dal - „Get ekki þakkað Halldóri nóg"

Lestu um leikinn: Þór 1 - 2 ÍA
„Árni er meiddur, hann ristarbrotnaði í tæklingu í Þórsleiknum. Hann er frá í 6-8 vikur," segir Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, við Fótbolta.net.

Félagaskiptaglugginn er lokaður og ÍA ætlar að sækja um undanþágu til að geta fengið inn markvörð.

„Við fengum út úr myndatökunni um miðjan dag í gær og erum í samskiptum við KSÍ núna. Það er alveg borðleggjandi að við þurfum að óska eftir því að geta fengið inn markmann, við erum ekki með markmann til að taka við af Árna."

Nafn Ögmundar Kristinssonar kom fljótt upp í huga fréttamanns, væri það einhver lausn að reyna fá hann frá Val?

„Ég vil ekkert segja neitt núna, við erum í fyrstu skrefum í þessu ferli, og þau eru að athuga hvort við fáum leyfi til þess að fá inn markmann, sem við hljótum að fá því við erum markmannslausir."

ÍA lánaði Loga Mar Hjaltested í venslalið Kára undir lok gluggans. Er einhver hugmynd að kalla hann til baka?

„Ég er ekki viss um að við mættum það. Framkvæmdastjórinn og hans menn eru að skoða þetta og vinna í þessu hörðum höndum, staðan er óljós akkúrat núna. Árni var í raun eini leikmaðurinn sem mátti alls ekki meiðast hjá okkur."

Isak Theodor Eidem (2009) hefur verið varamarkvörður ÍA í síðustu leikjum.

ÍA á leik gegn ÍBV á ELKEM-vellinum á fimmtudag svo menn á Skaganum þurfa að hafa hraðar hendur í markmannsleitinni.

En að Árna og leiknum á sunnudag, Lárus er stoltur af sínum manni fyrir að klára leikinn.

„Hann stóð seinni hálfleikinn mjög vel, við áttum samræður í hálfleik og ég talaði einu sinni við hann á meðan leik stóð. Hann var kvalinn og á heiður skilinn fyrir að komast í gegnum leikinn. Leikurinn endaði líka á því að hann kom út og tók boltann. Hann stóð sig mjög vel, hrós á hann, flottur karakter," segir Lárus Orri.

Styttist í Rúnar Má og Steinar
Þjálfarinn segir að það styttist í Rúnar Má Sigurjónsson og Steinar Þorsteinsson. „Ég er að vonast til að þeir verði klárir eftir landsleikjahlé. Ég er að vonast til þess að þeir byrji að æfa með okkur í næstu viku," segir þjálfarinn að lokum.
Þór fékk aukaspyrnu í kjölfarið þar sem brotið var á leikmanni Þórs í aðdraganda tæklingarinnar sem hér sést.

Þór fékk aukaspyrnu í kjölfarið þar sem brotið var á leikmanni Þórs í aðdraganda tæklingarinnar sem hér sést.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Árni Marinó ristarbrotinn og ÍA kannar möguleika á neyðarskiptum
Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR14+1429
3Fram12+726
4Breiðablik13+722
5Valur14-319
6Stjarnan14-315
7ÍBV13-415
8Keflavík12-615
9ÍA13-815
10KA13-910
11FH13-138
12Þór13-218
Árni Marinó ristarbrotinn og ÍA kannar möguleika á neyðarskiptum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.