Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. júní 2021 21:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fimm lið í viðbót áfram eftir sigur Belgíu
Englendingar eru öruggir áfram.
Englendingar eru öruggir áfram.
Mynd: EPA
Belgía og Danmörk komust áfram í 16-liða úrslitin á Evrópumótinu eftir úrslit kvöldsins.

Þessi tvö lið komust ekki bara áfram, því fimm önnur lið tryggðu sér einnig farseðil í næstu umferð í kvöld með þessum úrslitum.

England, Tékkland, Sviss, Svíþjóð og Frakkland eru öll örugg með sæti sitt í 16-liða úrslitunum eftir sigur Belgíu.

Þessi lið eru öll komin með fjögur stig og verða því hið minnsta eitt af fjórum liðunum með bestan árangur í þriðja sæti þegar riðlakeppnin klárast.

Riðlakeppnin á Evrópumótinu klárast næstkomandi miðvikudag. Dauðariðillinn, E-riðillinn, verður sá síðasti til að klárast.


Athugasemdir
banner
banner