Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. júní 2021 17:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pandev kveður - Fékk heiðursvörð er hann gekk út af
Fékk heiðursvörð.
Fékk heiðursvörð.
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Goran Pandev var að klára landsliðsferil sinn með Norður-Makedóníu.

Pandev fór af velli á 69. mínútu í leik gegn Hollandi á Evrópumótinu. Staðan er 3-0 fyrir Holland þegar þessi frétt er skrifuð.

Pandev, sem er 37 ára, leggur landsliðskóna á hilluna eftir þennan leik. Hann endar landsliðsferil sinn eins og Eiður Smári Guðjohnsen, sem goðsögn á fyrsta stórmóti þjóðar sinnar.

Leikurinn í dag var númer 122 á landsliðsferil Pandev en hann fékk sérstaka treyju frá Hollendingum fyrir leik. Greinilega mikil virðing borin fyrir þessum frábæra framherja sem skoraði eitt mark á þessu fyrsta stórmóti Norður-Makedóníu.

Leikmenn Norður-Makedóníu stóðu heiðursvörð fyrir Pandev þegar hann gekk af velli.


Athugasemdir
banner