Fotbolti.net
21.06.25 - 19:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rashford um Yamal: Allir vilja spila með þeim bestu

Rashford um Yamal: Allir vilja spila með þeim bestu
Canon

Mynd: EPA

Marcus Rashford, leikmaður Man Utd, hefur lengi verið orðaður við Barcelona.

Þessi 27 ára gamli Englendingur er ekki inn í myndinni hjá Ruben Amorim en hann var á láni hjá Aston Villa á síðustu leiktíð.

Hann er staddur í fríi á Marbella á Spáni og var í viðtali á spænsku Youtube-rásinni xBuyer. Þar var hann spurður að því hvort hann vildi spila með Lamine Yamal í framtíðinni.
„Já klárlega. Allir í heiminum vilja spila með þeim bestu, vonandi, við sjáum til," sagði Rashford.

„Það er erfitt að lýsa því sem hann er að gera því hann á ekki að vera gera þetta 17 ára gamall. Hann er að spila á stærsta sviðinu, við höfum ekki sé þetta áður. Það er hæfileiki að vera með þetta hugarfar."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.