Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   fös 21. ágúst 2020 22:35
Anton Freyr Jónsson
Óskar Hrafn: Leikur sem menn hafa beðið eftir lengi
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðablik
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta og Breiðablik mættust á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi í Pepsí Max-deild karla í kvöld og leiknum lauk með 1-0 sigri Blika en Thomas Mikkelsen skoraði eina mark leiksins af vítapunktinum.

Lestu um leikinn: Grótta 0 -  1 Breiðablik

„Já, ég held að það sé alveg óhætt að segja það, þetta voru erfiðar 90 mínútur fyrir okkur.Við vorum ekki góðir og áttum kannski ekkert endilega skilið að vinna þennan leik en við tökum stigin." voru fyrstu viðbrögð Óskars Hrafns þjálfara Blika eftir leik

Blikarnir voru ekki góðir sóknarlega í kvöld en hvað fer úrskeiðis?

„Við gætum örugglega spjallað lengi saman um það en kannski fyrst og síðast við vorum hægir, spiluðum ekki fram á við, notfærðum okkur ekki breiddina á vellinum og það vantaði upp á ákvörðunartökurnar hjá okkur. Stutta svarið er bara að þetta var hreint og beint lélegt."

Óskar Hrafn hrósaði Gróttuliðinu eftir leik

„Ég ætla ekki að taka neitt af Gróttuliðinu, þeir vörðust vel og það var á brattana að sækja þegar þeir voru orðnir tíu og þá voru þeir enþá þéttari og við áttum í erfiðleikum að finna leið í gegnum þá og bara hrósa þeim fyrir það."

„Mér fannst þetta vera rautt spjald, ég er svosem ekki dómari en þetta leit úr fyrir mér að Gísli Eyjólf er að sleppa einn í gegn og hann hreinlega sparkar hann niður og er aftasti maður og það var ekkert sem Gróttuliðið gat gert í því þegar Gísli Eyjólfsson er komin á ferðina. Ég held hann dæmt rétt í þetta skipti.

Viktor Karl Einarsson snéri aftur til baka eftir löng meiðsli í Blikaliðið í kvöld þegar hann kom inn á sem varamaður í byrjun seinni hálfleik og er gleðiefni fyrir Blika að hann sé mættur

„Já það er auðvitað mjög jákvætt að Viktor Karl er kominn til baka, hann er mjög öflugur og búin að vera lengi frá og það er eitt af því jávæða sem við tökum úr þessum leik."

Framundan er Evrópuverkefni hjá Breiðablik en liðið mætir Rosenborg og Óskar var spurður hvernig staðan á hópnum væri svona strax eftir leikinn í kvöld.

„Ég held það séu bara nánast allir heilir, ég á svo sem ekki von á öðru eftir helgina að þá verða allir mættir, þetta er leikur sem menn hafa beðið eftir lengi og alla langar til að spila þannig ég á ekki von á öðru en við verðum klárir í það verkefni."

Viðtalið í heild má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner
banner