Fotbolti.net
10.07.26 - 20:44
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: 10. umferð Bestu deildar - Ída nálægt 50 ára meti og tvær náðu stórum áföngum

Ída Marín Hermannsdóttir átti ótrúlegan leik þegar hún skoraði fyrstu fimm mörk FH gegn Þrótti.

Ída Marín Hermannsdóttir átti ótrúlegan leik þegar hún skoraði fyrstu fimm mörk FH gegn Þrótti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir 50 árum skoruðu tvær FH-konur sex mörk í sama leiknum í efstu deild kvenna. Ída Marín Hermannsdóttir var nærri því að leika það eftir þegar hún skoraði fimm mörk fyrir FH gegn Þrótti í 10. umferð Bestu deildarinnar.

Elísa Viðarsdóttir úr Breiðabliki og Andrea Mist Pálsdóttir úr Stjörnunni náðu stórum áföngum í tíundu umferðinni og sama er að segja um lið Víkings sem mætti ÍBV.

Fram vann mjög óvæntan sigur á Breiðabliki og það er ár og dagur síðan það gerðist síðast í efstu deild kvenna. Þá á Fram núna næstmarkahæsta leikmann deildarinnar sem hefur skorað stóran hluta af mörkum liðsins í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.