Steven Gerrard, stjóri Aston Villa, var í viðtali við Sky Sports um allt milli himins og jarðar og ræddi meðal annars um frægasta vin sinn, Jamie Carragher.
Carragher og Gerrard ólust báðir upp hjá Liverpool og spiluðu saman til 2013 er Carragher ákvað að leggja skóna á hilluna.
Gerrard er í dag stjóri Aston Villa á meðan Carragher er helsti sparkspekingur Sky Sports en hann og Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, mynda þar gott teymi.
Enski stjórinn var spurður út það hver væri frægasti vinur hans og var hann fljótur að svara því. Það er auðvitað Carragher en hann vandaði honum ekki kveðjurnar.
„Jamie Carragher í þínum heimi. Hann er að rústa þessu spekingsstarfi. Hann er aðalmaðurinn þar og hann er líklega frægasti vinur minn núna."
„Bróðir Gary Neville. Fólk fær ekki nóg af honum og hann hringir ekki eða sendir mér skilaboð. Maður sér ekkert af honum. Gary Neville rændi honum af mér. VIð vorum ótrúlega nánir. Getur þú ímyndað þér Gary Neville að ræna vini þínum?" sagði Gerrard í góðu gríni.
"Imagine that, imagine Gary Neville robbing your mate!" 😢
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) January 22, 2022
Steven Gerrard sounds a bit jealous of @Carra23 and @GNev2 🤣💔 pic.twitter.com/A4ZOuUGUh4
Athugasemdir