22.03.26 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes: Ótrúlegt miðað við hvar við vorum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
David Moyes var mjög ánægður eftir frábæran 3-0 sigur Everton gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Everton er óvænt að blanda sér í baráttuna um evrópusæti og situr núna í áttunda sæti deildarinnar, aðeins þremur stigum frá meistaradeildarsæti.
Ef Everton tekst að landa sæti í evrópukeppni verður það í fyrsta sinn síðan 2018. Ef liðið kemst hins vegar í Meistaradeildina þá verður það í fyrsta sinn sem það gerist síðan 1970.
„Það er ótrúlegt fyrir okkur að vera að berjast um sæti í Evrópu, hvort sem það er sæti í Meistaradeildinni eða Sambandsdeildinni," sagði Moyes eftir sigurinn.
„Á sama tíma í fyrra vorum við að forðast fallbaráttuna og vorum mjög skuldsettir. Það voru nýir eigendur að kaupa félagið og 10 eða 12 leikmenn að verða samningslausir. Það er magnað að við séum í svona góðri stöðu á þessum tímapunkti, ég er mjög stoltur.
„Það er draumi líkast að vera að berjast um evrópusæti á þessum tímapunkti frekar en að vera í fallbaráttunni."
Moyes hrósaði leikmönnum sínum fyrir góða frammistöðu gegn Chelsea og þá sérstaklega Beto sem skoraði tvennu og James Garner sem stjórnaði miðjunni og gaf glæsilega stoðsendingu.
„Þetta var besti leikur sem við höfum spilað á Hill Dickinson vellinum og stemningin var frábær, hún minnti mig á Goodison Park. Núna eru sjö leikir eftir og ef við náum að enda í efri hluta deildarinnar þá myndi ég segja að við höfum unnið frábært afrek.
„Núna erum við hér og ætlum að halda áfram á okkar braut. Við munum gera okkar allra besta til að reyna að komast í Evrópu.
„Við erum ekki að hugsa um meistaradeildarsæti, það er mjög erfitt að enda þar. Við værum meira en ánægðir með hvaða evrópusæti sem er!"

TENGT EFNI
England: Everton skellti Chelsea

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |