Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
banner
laugardagur 27. apríl
Besta-deild kvenna
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
fimmtudagur 28. september
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 25. apríl
Úrvalsdeildin
Brighton - Man City - 19:00
Serie A
Udinese - Roma - 18:00
Úrvalsdeildin
CSKA - Spartak - 17:30
Akhmat Groznyi - Sochi - 17:30
Fakel - Kr. Sovetov - 15:15
Ural 0 - 1 Rostov
fös 22.apr 2022 17:45 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 7. sæti

Keppni í Bestu kvenna hefst 26. apríl. Fótbolti.net mun næstu daga opinbera spá fyrir deildina í sumar. Liðin verða kynnt eitt af öðru.

Þjálfarinn (Alexander) og fyrirliðinn (Sesselja)
Þjálfarinn (Alexander) og fyrirliðinn (Sesselja)
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Elísabet
Guðrún Elísabet
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eva Ýr
Eva Ýr
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Már
Bjarki Már
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildur er komin í Mosfellsbæinn
Hildur er komin í Mosfellsbæinn
Mynd/Fótbolti.net - Hulda Margrét
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4 ?
5 ?
6. ?
7. Afturelding
8. ÍBV
9. KR
10. Keflavík

7. sæti Afturelding (nýliði)

Lokastaða í fyrra: 2. sætið í Lengjudeildinni, næstbesta sóknin og besta vörnin í þeirri deild. Liðið er komið upp í efstu deild í fyrsta sinn frá fallinu 2015.

Þjálfarinn: Alexander Aron Davorsson tók við eftir tímabilið 2019 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari það tímabil. Bjarki Már Sverrisson er einnig aðalþjálfari og Ruth Þórðar Þórðardóttir er þeim Alla og Bjarka til aðstoðar.

Álit Eiðs
Eiður Ben Eiríksson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu kvenna en hann var síðustu ár annar af þjálfurum Vals. Hér er álit Eiðs á liði Aftureldingar.

„Liðið úr Mosó ætlar sér ekki bara að vera með í ár, þær ætla sér að vera berjast í efri hluta deildarinnar. Ég tek hatt minn ofan fyrir þeim, það eru fá lið sem koma inn í deildina með þessum krafti. Metnaðarfullt þjálfarateymi og umgjörðin tip top.

Fyrir hönd Mosfellinga vona ég bara að stemningin súrni ekki, þrátt fyrir að mikið sé búið að leggja í hlutina, tempó á æfingum og jákvæð spilamennska í vetur, þá þarf liðið að átta sig á því að það að tryggja veru liðsins í deildinni er það sem skiptir öllu máli. Liðið er einnig búið að taka miklum breytingum milli ára og það getur alltaf tekið tíma, sérstaklega í deildinni fyrir ofan."


Þurfa að brosa í gegnum mótlætið
„Stuðningurinn þarf að vera sá sami og í fyrra og Alexander þarf að vera brosandi í gegnum mótlætið. Liðið gæti hæglega barist í efri hlutanum ef þær fá fljúgandi start inní mótið, ná upp sterkri liðsheild frá fyrsta degi, það er lítið mál að hafa góða liðsheild þegar sigrarnir koma en hvernig er hún þegar tvö þrjú töp líta dagsins ljós?

Liðið sem mætir til leiks er sterkt, blanda af öflugum íslenskum leikmönnum og spennandi útlendingum. Það má þó ekki gleymast að enginn leikmaður liðsins hefur virkilega sannað sig sem góður efstu deildar leikmaður og ættu markmið einstakra leikmanna að vera nokkuð skýr."


Lykilmenn: Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir, Eva Ýr Helgadóttir og Taylor Lynne Bennett

Gaman að fylgjast með: Hildur Karítas Gunnarsdóttir hefur undanfarin ár spilað með Haukum og staðið sig vel þar. Þetta er leikmaður sem allir hafa vitað af og vonandi springur hún út í sumar.

Komnar:
Dennis Chyanne frá Bandaríkjunum
Eyrún Vala Harðardóttir frá Breiðabliki á láni
Hildur Karítas Gunnarsdóttir frá Haukum
Ísafold Þórhallsdóttir frá Breiðabliki
Sigrún Eva Sigurðardóttir frá ÍA
Þórhildur Þórhallsdóttir frá Breiðabliki
Halla Margrét Hinriksdóttir frá Stjörnunni (var á láni)
Halla Þórdís Svansdóttir frá Fram (var á láni)

Farnar:
Anna Kolbrún Ólafsdóttir í Fjölni
Hajar Tahri til Marokkó
Indy Isabelle Spaan til Ítalíu
Oliviu Sheppard
Rachel Van Netten til Hollands
Sofie Dall Henriksen hætt
Athugasemdir
banner
banner