Fotbolti.net
22.04.23 - 19:34
Fótbolti.net

Heimavöllurinn: Upphitunarpartý og spá fyrir 2. deild

Auglýsing
Aníta Lísa og Pétur Rögvalds hita upp fyrir 2. deildina

Aníta Lísa og Pétur Rögvalds hita upp fyrir 2. deildina

Canon

Mynd: Heimavöllurinn

Það er rúm vika í að keppni í 2. deild hefjist og Heimavöllurinn hitar upp fyrir fjörið. Til leiks mæta þjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Pétur Rögnvaldsson en þau fóru upp úr 2. deild með sín lið, Fram og Gróttu í fyrra, og þekkja því vel til. Þau spá í spilin ásamt Mist Rúnarsdóttur, fara yfir liðin og leikmenn sem gætu gert það gott í sumar.

Á meðal efnis:

- Spá fyrir 2.deild

- Hverjar verða ON lykilmenn sinna liða?

- Hvaða leikmönnum á að fylgjast sérstaklega vel með?

- Nýliðar og mikil endurnýjun

- Hver verður markahæst?

- Dominos-spurningin er á sínum stað

- Ungir þjálfarar fá traustið

- Magnaðir uppaldir leikmannahópar

- Hvað segir Instagram?

- Hverjar eru kandidatar í Besta leikmann?


- Þetta og margt fleira í þætti dagsins.

Hlustaðu hér að ofan, í gegnum hlaðvarpsveituna þína eða á Heimavöllurinn.is

Þátturinn er í boði Dominos og Orku náttúrunnar.

Heimavöllurinn er einnig á Instagram en þar eru knattspyrnu kvenna gerð skil á lifandi hátt alla daga vikunnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.