Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Taka ákvörðun á morgun með Emil
Emil fór af velli gegn FH en hann skoraði tvö mörk í sigrnum á KA í fyrstu umferðinni.
Emil fór af velli gegn FH en hann skoraði tvö mörk í sigrnum á KA í fyrstu umferðinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjörnumennirnir Alex Þór Hauksson og Emil Atlason eru tæpir fyrir leikinn gegn Víkingi annað kvöld. Liðin mætast í stórleik 3. umferðar Bestu deildarinnar klukkan 19:15 á Víkingvelli.

„Það eru einhver spurningamerki með Alex Þór og Emil. Emil stífnaði aðeins upp í síðasta leik og við gefum okkur þangað til á morgun með að taka lokaákvörðun um það. Aðrir eru bara heilir og í lagi," segir Jökull Elísabetarson sem er þjálfari Stjörnunnar.

Emil (1993) er einn allra besti framherji deidlarinnar en hann fór af velli gegn FH síðasta föstudag. Inn kom Andri Rúnar Bjarnason og skoraði hann sigurmarkið gegn FH-ingum.

Alex Þór (1999) er miðjumaður sem var í liðsstjórn í fyrstu tveimur umferðunum. Hann sneri aftur í Garðabæinn fyrir síðasta tímabil eftir eitt ár hjá KR en þar á undan hafði hann verið hjá Öster í Svíþjóð í þrjú ár.
Slapp
banner
banner
banner