Heimir Guðjónsson og lærisveinar hans í HB eru komnir í bikarúrslit í Færeyjum.
HB hafði betur gegn KÍ samanlagt 2-1 í einvígi um sæti í úrslitaleiknum.
Ari Mohr Olsen tryggði HB sigur í einvíginu með marki sem hann skoraði undir lok leiksins í dag, niðurstaðan 1-0 sigur HB í dag en fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Það er því ljóst að þeir Heimir Guðjónsson og Brynjar Hlöðversson eru komnir í bikarúrslit í færeyska boltanum.
HB fór einnig í úrslit í fyrra en þá var niðurstaðan tap eftir vítaspyrnukeppni við B36, það kemur svo í ljós á morgun hver mótherji HB verður í bikarúrslitunum.
Athugasemdir