Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. maí 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Vidal svarar Chiellini: Gerði ekki eitthvað sem mátti ekki
Arturo Vidal.
Arturo Vidal.
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal, leikmaður Barcelona, hefur svarað fyrir sig eftir ummæli sem Giorgio Chiellini, varnarmaður Juventus, lét falla í ævisögu sinni.

Chiellini sagði að áfengi sé veikleiki Vidal en þeir spiluðu saman hjá Juventus á sínum tíma.

„Fólk hefur einbeitt sér að því versta sem Chiellini sagði. Ég skil ekki af hverju hann er að nefna þessi hluti og þetta pirraði mig en hann sagði líka að ég væri sigurvegari," sagði Chiellini.

„Þetta var ekki eitthvað sem ég mátti ekki gera. Ég mátti fara út á lífið. Ég er manneskja eins og allir aðrir. Ég legg hart að mér og ef vinir mínir hittast í grillveislu og ég hef leyfi hjá félaginu þá mæti ég líka."

„Ef ég verð að einbeita mér þá geri ég það. Þegar ég má hafa gaman þá nýti ég mér það. Ég er eins og aðrir. Þegar ég gerði mistök þá fékk ég að gjalda fyrir þau,"
sagði Vidal sem skaut að lokum á Chiellini: „Í fótbolta eru ákveðnar reglur."
Athugasemdir
banner
banner
banner