23.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Acimovic til Lille (Staðfest)




Franska liðið Lille hefur fengið slóvenska miðjumaninn Milenko Acimovic að láni út þetta tímabil frá Tottenham. Acimovic er 26 ára og á 37 leiki að baki fyrir slóvenska landsliðið en hann kom til Tottenham árið 2002 frá Rauðu Stjörnunni í Belgrad. Acimovic hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Tottenham og ekki verið í byrjunarliði í neinum deildarleik hjá liðinu á leiktíðinni.
