23.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Hubner og Sculli til Perugia (Staðfest)

Dario Hubner.


Dario Hubner.

Perugia hefur fengið sóknarmennina Dario Hubner og Giuseppe Sculli, þetta var tilkynnt í dag. Hubner var keyptur frá Ancona en Sculli kemur á láni frá Chievo Verona. Hubner er 36 ára og skoraði samtals 55 mörk á seinustu þremur tímabilum í Seríu-A en þar lék hann með Brescia og Piacenza. Hann hefur spilað níu leiki það sem af er þessu tímabili en ekki náð að skora.
Það hefur gengið svipað illa hjá Sculli að skora en hann er 22 ára og hefur aðeins gert eitt mark í átta leikjum. Perugia er í 17.sæti deildarinnar með 10 stig eftir 18 leiki en liðið hefur enn ekki unnið leik. Liðið hefur fimm stigum meira en Ancona sem er í neðsta sæti.
