Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 23. febrúar 2020 09:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Arteta ánægður með andann í hópnum
Mikel Arteta.
Mikel Arteta.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta hefur farið nokkuð vel af stað sem stjóri Arsenal og gengi liðsins það sem af er ári verið nokkuð gott.

Arteta er ánægður með hvernig málin eru að þróast og segir andann í hópnum góðan.

„Við í þjálfarateyminu verðum ekki varir við annað en það sé mikil samheldni í hópnum og góður andi."

„Sama hvaða hugmyndir við nefnum við þá er tekið vel í allt, leikmennirnir gera allt til að fylgja því eftir sem lagt er upp með að gera. Ég er svo ánægður með vinnusemina í hópnum," sagði Arteta.

Arsenal fær Everton í heimsókn í dag á Emirates leikvanginn, flautað verður til leiks klukkan 16:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner