| mán 23.mar 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 10. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Þór muni enda í 10. sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Þór heldur sér uppi ef spáin rætist.
Sigfús Fannar var besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig
Um liðið: Það voru gríðarleg fagnaðarlæti í Þorpinu síðasta haust þegar ljóst varð að Þórsarar myndu spila í Bestu deildinni sumarið 2026. Þórsarar höfðu beðið lengi eftir þessari stundu en þeir höfðu verið í Lengjudeildinni samfleytt síðan 2015. Þeim var spáð góðu gengi sumarið 2024 en þá gengu hlutirnir ekki alveg upp og liðið náði ekki að stíga skrefið sem margir bjuggust við. Trúin var minni hjá sérfræðingum fyrir tímabilið í fyrra, en Þórsarar svöruðu því með frábæru tímabili þar sem þeir sýndu bæði karakter og gæði. Þeir fóru alla leið og tryggðu sér sæti í efstu deild með sigri í hreinum úrslitaleik gegn Þrótti í Laugardalnum, þar sem liðið var sterkari aðilinn og kláraði verkefnið nokkuð sannfærandi. Með því uppfylltu Þórsarar draum sem hafði verið í burðarliðnum lengi og stemningin í kringum félagið hefur sjaldan verið meiri. Nú tekur við allt annað verkefni. Besta deildin er krefjandi og það verður spennandi að sjá hvort Þórsarar geti byggt ofan á það sem skilaði þeim upp, eða hvort bilið á milli deilda reynist stærra en þeir vonast til.
Þjálfarinn: Sigurður Heiðar Höskuldsson hefur unnið sig inn í hug og hjörtu Þórsara með því að koma liðinu upp í Bestu deildina á nýjan leik. Þórsarar lögðu mikið á sig til að fá Sigga í Þorpið fyrir tímabilið 2024 og það tókst hjá þeim á endanum. Hann var þeirra maður og þeir gáfust ekki upp á að fá hann til sín. Siggi, sem er fertugur, var aðstoðarþjálfari hjá Val áður en hann tók við Þór en hann er með mikla reynslu sem aðalþjálfari. Siggi á það núna á ferilskránni að hafa komið tveimur liðum upp úr Lengjudeildinni en hann gerði það með Leikni á sínum tíma líka. Honum tókst að halda Leikni uppi í kjölfarið á því að liðið fór upp og verður fróðlegt að sjá hvort þessi hæfileikaríki þjálfari geri slíkt hið sama með Akureyrarliðið.
Styrkleikar: Þegar maður hugsar um Þórsara þá hugsar maður fyrst og fremst um stemningu. Það verður að öllum líkindum gríðarleg stemning í kringum þetta lið í sumar og það þarf að vera þannig svo árangurinn verði sem bestur. Tengingin á milli liðsins og stuðningsmanna er svakalega mikil og stuðningsmennirnir þurfa heldur betur að vera á tánum. Árangurinn á undirbúningstímabilinu hefur verið góður og þeir geta tekið það með sér inn í tímabilið sem er framundan. Þórsarar hafa endurheimt nokkra heimamenn sem ættu að geta hjálpað liðinu mikið. Þetta eru leikmenn sem eru með reynslu úr Bestu deildinni og eru með mikið Þórshjarta sem er jákvætt. Nú fyrir eru margir heimamenn í liðinu og það myndar enn frekari stemningu.
Veikleikar: Það voru breytingar núna stuttu fyrir mót. Ibrahima Balde var einn besti leikmaður Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili en hann yfirgaf félagið á dögunum þar sem hann var ósammála þjálfarateyminu um hvaða stöðu hann ætti að spila. Balde átti að spila sem sóknarmaður en það er staða sem Þórsarar eru kannski ekkert frábærlega mannaðir í á þessum tímapunkti. Það er að koma Norðmaður til félagsins en hann er spurningamerki í Bestu deildinni. Það vantar kannski aðeins upp á breiddina miðað við önnur lið og margir leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í Bestu deildinni og þurfa að venjast þessu gæðastigi. Þórsarar fá mjög erfitt leikjaprógramm í byrjun og ef liðið fer hægt af stað, þá gæti það haft áhrif á það sem gerist í framhaldinu.
Lykilmenn: Atli Sigurjónsson og Yann Emmanuel Affi
Atli Sigurjónsson er kominn heim í Þorpið eftir mörg frábær ár í höfuðborginni með KR-ingum. Atli hefur verið í fantaformi á undirbúningstímabilinu og það er vonandi fyrir Þórsara að hann taki það með sér inn í tímabilið. Þetta eru seinni ár ferilsins hjá Atla en það eru enn töfrar í þessum fótum. Affi er varnarmaður sem kom til Þórsara fyrir síðasta tímabil og var stórkostlegur með liðinu í Lengjudeildinni. Affi er reynslumikill og þarf að drífa varnarlínuna áfram í sumar þegar liðið tekur skrefið upp á við í Bestu deildina.
Gaman að fylgjast með: Einar Freyr Halldórsson
Einn af þeim leikmönnum sem verður hvað mest spennandi að fylgjast með í Bestu deildinni í sumar. Einar er 17 ára gamall en hann skoraði fjögur mörk í 19 leikjum í Lengjudeildinni og MJólkurbikarnum á síðustu leiktíð. Hann var valinn besti ungi leikmaður deildarinnar og var í liði ársins hér á Fótbolta.net. Ótrúlega þroskaður leikmaður miðað við aldur. Norska félagið Brann vildi kaupa hann eftir síðasta tímabil en hann ákvað að vera áfram í Þór og spila í efstu deild. Fylgist líka með Sigfúsi Fannari sem var besti leikmaður Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili og er að taka sín fyrstu skref í Bestu deildinni.
Spurningarnar: Hvernig verður stemningin? Hvað koma nýju heimamennirnir með að borðinu? Hvernig verður nýi sóknarmaðurinn?
Völlurinn: Síðasta sumar spiluðu Þórsarar í Boganum en sem betur fer gera þeir það ekki í Bestu deildinni þetta sumarið. Síðustu mánuði hafa staðið yfir framkvæmdir á svæði Þórsara og unnið að því að útbúa gervigrasvöll sem liðið á að spila á í sumar. Framkvæmdir hafa tafist aðeins og stúkan er ekki alveg klár við völlinn, en Þór byrjar á tveimur útileikjum og vonandi að þeir muni byrja á nýja gervigrasvellinum þegar þeir snúa aftur heim.
Komnir:
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra
Atli Sigurjónsson frá KR
Isaac Antanga frá Svíþjóð
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá FH á láni
Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti
Elvar Baldvinsson frá Völsungi
Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var á láni)
Farnir:
Ibrahima Balde í Vestra
Orri Sigurjónsson hættur
Clement Bayiha til Kanada
Rafael Victor í Grindavík
Juan Guardia í Völsung
Dagbjartur Búi Davíðsson í KA (var á láni)
Leikmannalisti:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (F)
12. Víðir Jökull Valdimarsson (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
3. Birgir Ómar Hlynsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson
8. Einar Freyr Halldórsson
10. Aron Ingi Magnússon
11. Isaac Atanga
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
18. Sverrir Páll Ingason
19. Ragnar Óli Ragnarsson
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
21. Elvar Baldvinsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Ingimar Arnar Kristjánsson
24. Ýmir Már Geirsson
25. Christian Jakobsen
27. Atli Þór Sindrason
28. Franko Lalic (Gk)
30. Peter Ingi Helgason Jones
31. Kristófer Kató Friðriksson
35. Kristófer Máni Sigurðsson
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
Fyrstu fimm leikir Þór:
12. apríl, Valur - Þór (N1 völlurinn Hlíðarenda)
17. apríl, KR - Þór (Meistaravellir)
23. apríl, Þór - Fram (Þórsvöllur)
27. apríl, Breiðablik - Þór (Kópavogsvöllur)
2. maí, Þór - KA (Þórsvöllur)
Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
Athugasemdir



