23.05.12 - 12:42
Ívan Guðjón Baldursson
Romain Amalfitano til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Romain Amalfitano, franskur miðjumaður Stade de Reims, er á leið til Newcastle United í sumar.
Amalfitano kemur til félagsins frítt, enda samningslaus í sumar, en hann var lykilleikmaður fyrir Reims á síðasta tímabili þar sem hann átti stóran part í því að koma liðinu upp í efstu deild.

Amalfitano er 22 ára gamall en stóri bróðir hans, Morgan Amalfitano, er byrjunarliðsmaður hjá Olympique Marseille.
Amalfitano er þá fimmti Frakkinn í leikmannahóp Newcastle, en Yohan Cabaye og Hatem Ben Arfa hafa verið að gera það gott með félaginu upp á síðkastið.