Fotbolti.net
23.07.04 - 07:48
Hafliði Breiðfjörð

Flamini til Arsenal (Staðfest)

Flamini til vinstri í baráttu við Laurent Robert

Flamini til vinstri í baráttu við Laurent Robert

Canon
Matthieu Flamini leikmaður franska U21 árs landsliðsins gekk í gær í raðir Arsenal frá franska félaginu Marseille. Flamini er tvítugur og var í liði Marseille sem tapaði fyrir Valencia í úrslitaleik UEFA Cup á síðustu leiktíð. Hann var einnig í U-21 árs landsliði Frakka sem vann Toulon mótið. Arsene Wenger stjóri Arsenal sagði í gær: ,,Þó Mathieu sé ungur þá hefur hann þegar góða reynslu á meðal þeirra bestu. Hann er kraftmikill, mjög skapandi og mun verða frábær viðbót."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.