Fotbolti.net
23.07.04 - 17:08

Radzinski til Fulham (Staðfest)

Kveðjukoss?

Kveðjukoss?

Canon
Fulham hafa gengið frá kaupum á Tomasz Radzinski, framherja Everton, en Kanadamaðurinn á einungis eftir að gangast undir læknisskoðun.
Þessi 30 ára gamli framherji hefur skrifað undir 3 ára samning og er því orðinn þriðji leikmaðurinn sem Chris Coleman kaupir á stuttum tíma.
"Þetta hafa verið góðar 2 vikur fyrir félagið varðandi leikmenn." sagði Coleman. "Ég er ánægður með að hafa fengið þrjá frábæra leikmenn með tilkomu Andy Cole, Claus Jensen og núna, Tomasz Radzinski."

Talið er að Fulham hafi greitt 1.75milljónir punda fyrir Radzinski sem átti einungis eitt ár eftir af samningi sínum á Goodison Park. Framherjinn, sem kom til Everton frá Anderlecht fyrir þremur árum, neitaði nýlega nýjum þriggja ára samning frá Everton og gagnrýndi David Moyes, stjóra félagsins.

Evertonmenn voru víst ekkert allt of sáttir við þá framkomu Radzinski og voru ekki lengi að selja hann en Kanadamaðurinn gagnrýndi stjórann fyrir að hafa verið ósköp dapur á leikmannamarkaðinum undanfarið.

Talið er að Coleman sé ekki hættur að láta til sín taka þar sem hann fékk vænar 3 milljónir fyrir Sean Davis sem fór til Tottenham, en svo á hann auðvitað inni peninginn fyrir Louis Saha sem fór til Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.