Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. júlí 2019 20:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Evrópudeildin: Óvænt jafntefli hjá FC Astana
Rúnar Már í landsleiknum gegn Albaníu í júní.
Rúnar Már í landsleiknum gegn Albaníu í júní.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur síðustu leikjum kvöldsins í 2. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar er lokið. Leikirnir eru fyrri leikir liðanna, seinni leikir liðanna fara fram í næstu viku.

Í fyrri leiknum heimsóti FC Astana, lið Rúnars Sigurjónssonar, Santa Coloma heim í Andorra. Fyrirfram var búist við öruggum sigri Astana í kvöld en yfirburðirnir voru furðu litilir. Astana átti þrettán marktilraunir gegn ellefu heimamanna.

Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliði Astana og spilai fyrstu 64 mínutur leiksins. Hvorugu liðinu tókst að skora í kvöld.

Þá sótti Suduva frá Litháen lið Tre Penne frá San Marínó heim. Suduva lenti ekki í neinu veseni í kvöld og vann gífurlega sannfærandi sigur, 0-5.

Tre Penne (San Marínó) 0 - 5 Suduva (Litháen)
0-1 Giedrius Matulevicius ('10 )
0-2 Andro Svrljuga ('20 )
0-3 Andro Svrljuga ('66 )
0-4 Josip Tadic ('81 )
0-5 Tosaint Ricketts ('90+1 )

Santa Coloma (Andorra) 0 - 0 FC Astana (Kasakstan)
Athugasemdir
banner