23.07.26 - 22:33
Hafþór Örn Laursen
Frederik Schram: Vorum mjög óheppnir með þetta í fyrra
Auglýsing

Frederik Schram, markvörður Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frederik Schram, markvörður Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur vann 1-0 sigur í fyrri leik í einvígi þeirra gegn Zrinjski Mostar í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Frederik Schram, markmaður Vals, var valinn maður leiksins af fréttaritara Fótbolta.net og var fenginn í viðtal eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Zrinjski Mostar
„Mér líður frábærlega í dag, þetta var liðssigur og við vorum frábærir, sérstaklega varnarlega. Við vorum ekki mikið með boltann og lágum þétt og niðri og refsuðum þeim þegar þeir töpuðu boltanum.''
Frederik átti stórleik gegn Zrinjski og varði u.þ.b. 10 skot. Zrinjski ógnaði mikið í fyrri hálfleik og fengu þrjár hornspyrnur á tveggja mínútna millibili og voru nálægt því að skora í þeim færum.
„Þeir settu mikla pressu á okkur í fyrri hálfleik en við vorum frábærir í föstum leikatriðum. Það var nóg að gera í dag hjá mér en mikilvægt að ná þessum sigri og nú er bara hinn helmingurinn eftir.''
Valur spilar sinn næsta leik næsta fimmtudag gegn Zrinjski Mostar í Bosníu-og-Hersegovínu og eiga engan deildarleik á milli. Hin íslensku liðin hafa verið undir miklu leikja- og ferðaálagi vegna Evrópuleikjanna og hafa einungis nokkra daga til að undirbúa sig.
„Við erum heppnir með þetta, en í fyrra vorum við mjög óheppnir, áttum leiki gegn Kauno Zalgiris og það vantaði nokkra leikmenn í seinni leikinn og vorum ekki fullmannaðir. Það þýðir mikið fyrir okkur að hafa þessa viku til að undirbúa okkur fyrir næsta leik í Bosníu og hvíla okkur.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.