Fotbolti.net
23.08.04 - 18:40
Elvar Geir Magnússon

Rógvi Jacobsen til KR (Staðfest)

Rógvi Jacobsen til KR (Staðfest)
Canon
KR-ingar eru strax byrjaðir að styrkja sig fyrir næsta keppnistímabil. Færeyski landsliðsmaðurinnn Rógvi Jacobsen hefur skrifað undir tveggja ára samning við KR með möguleika á eins árs framlengingu en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Rógvi kemur til KR eftir þetta keppnistímabil.
Rógvi er 25 ára gamall og hefur leikið með HB í Þórshöfn frá árinu 2001. Hann er örvfættur miðjumaður og hefur skorað 35 mörk fyrir HB í 94 leikjum. Rógvi er markahæstur í færeysku deildinni, með níu mörk, ásamt Súni Olsen sem leikur með GÍ.

Rógvi lék sinn 26. A-landsleik, og skoraði sitt fjórða mark, þegar Færeyingar unnu Möltu 3-2 í Þórshöfn sl. miðvikudag. Rógvi skoraði í báðum leikjum Færeyinga og Íslendinga í undankeppni EM 2004. Rógvi lék einnig gegn Íslendingum á Norðurlandamótinu á La Manga í ársbyrjun 2000 og báða leiki HB gegn KR um Atlantc-bikarinn.

Heimild: krreykjavik.is.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.