23.10.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Zoran Panic til Hauka. (Staðfest)

Mynd: hk.is


Mynd: hk.is

Miðjumaðurinn Zoran Panic hjá HK hefur ákveðið að leika með Haukum í 1.deildinni næsta sumar en þetta kemur fram bæði á heimasíðu HK og Hauka. Zoran sem er 32 ára er frá Serbíu og Svartfjallalandi og hefur hann leikið seinustu þrjú tímabil með HK í fyrstu, annari og þriðjudeild en hann kom til HK 2001 frá Neista Djúpavogi þar sem að hann lék eitt sumar. Hann lék 17 leiki og skoraði 7 mörk í 1.deildinni í sumar en alls lék hann 79 mótsleiki með HK og skoraði 29 mörk.
