Fotbolti.net
24.03.26 - 14:45
Kári Snorrason

„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“

Auglýsing
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings mætir Fram í Bestu deildar slag í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Dregið var í hádeginu og er leikið á mili 4. til 7. apríl.

Aron Elís Þrándarsson, leikmaður Víkings, var viðstaddur dráttinn sem fram fór í hádeginu og ræddi Fótbolti.net við Aron að drættinum loknum.
Mjólkurbikarinn: Þrír Bestu deildar slagir
TENGT EFNI

Mjólkurbikarinn: Þrír Bestu deildar slagir

„Mér líst mjög vel á þetta, núna er þetta að skella á. Fínt að fá leik gegn alvöru liði áður en við mætum Blikum í fyrstu umferð. Við vitum að við erum að fara mæta rosalega góðu liði. Rúnar er að gera frábæra hluti þarna í Úlfarsárdalnum, þannig að þetta verður erfiður leikur en við erum klárir í þetta.“

Aron er að snúa til baka eftir krossbandaslit, hann var spurður út í stöðuna á sér: „Ég er enn að stíga upp úr þessum krossbandameiðslum. Það hafa komið nokkur bakslög undanfarið en vonandi er þetta allt að koma. Ég náði að spila aðeins um helgina. Ég þarf aðeins meiri tíma en fljótlega get ég farið á fullt.“

Víkingur hefur styrkt hópinn verulega í vetur og segir Aron mikla samkeppni í liðinu.

„Það er gríðarlega mikil samkeppni, sem er bara af hinu góða. Við erum að fara í marga leiki og vonandi langt í Evrópu. Við stefnum allaveganna að gera það. Það verður alvöru samkeppni og menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.