Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 12:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hin hliðin - Birna Kristín Björnsdóttir (FH)
Kvenaboltinn
Birna Kristín Björnsdóttir.
Birna Kristín Björnsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samantha Smith, mjög góð.
Samantha Smith, mjög góð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Geggjuð í fótbolta og flottur karakter.
Geggjuð í fótbolta og flottur karakter.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg er rugl efnileg.
Ingibjörg er rugl efnileg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Declan Rice.
Declan Rice.
Mynd: EPA
Algjör drottning.
Algjör drottning.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hversu mikið gel?
Hversu mikið gel?
Mynd: EPA
Deja Sandoval.
Deja Sandoval.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birna Kristín Björnsdóttir er fædd árið 2004 og uppalin í Breiðabliki. Hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Augnabliki, venslafélagi Blika, áður en hún skipti yfir í Aftureldingu. Hún fór svo í FH árið 2023, þar sem hún er enn í dag.

Birna Kristín, sem hefur spilað mikinn fjölda yngri landsleikja fyrir Ísland, kemur til með að spila gott hlutverk á miðjunni hjá FH í sumar. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Birna Kristín Björnsdóttir

Gælunafn: er ekki með neitt gælunafn

Aldur: 22

Hjúskaparstaða: lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Spilaði fyrsta mfl leikinn með Breiðablik í lengjubikarnum 2022, man bara ekkert eftir þeim leik.

Uppáhalds drykkur: Blá hleðsla

Uppáhalds matsölustaður: Serrano

Uppáhalds tölvuleikur: Spila ekki tölvuleiki

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Neibb

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: The Office klikkar ekki

Uppáhalds tónlistarmaður: Tame Impala

Uppáhalds hlaðvarp: Hlusta mjög lítið á hlaðvörp

Uppáhalds samfélagsmiðill: Eyði allt of miklum tíma á TikTok

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Það er alltaf vísir eða fotbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Finnst Saga Garðars skemmtileg

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “Hamborgarabrauð og tómatar” -innkaupalisti frá mömmu

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Kannski FHL, heillar mig ekki að búa úti á landi.

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Sammy Smith var mjög góð í fyrra

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef verið með marga góða þjálfara en verð að segja Hjörtur Hinriksson styrktarþjálfari, snillingur í sínu fagi.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Finnst alltaf erfitt að mæta Birtu Georgs

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Ætli það hafi ekki verið Sara Björk eða Gylfi Sig

Sætasti sigurinn: Örugglega sigur gegn Svíum með u19 þar sem við tryggðum okkur á EM 2023, það var geggjuð tilfinning.

Mestu vonbrigðin: Klárlega tapið í bikarúrslitum í fyrra.

Uppáhalds lið í enska: Arsenal

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Kannski Bergdísi úr Víking, geggjuð í fótbolta og flottur karakter.

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Margar rugl góðar í FH en ef ég þyrfti að velja eina væri það Ingibjörg Magnúsdóttir.

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Hmm erfitt að velja einhvern einn, margir myndarlegir

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Gef Ídu Marín þennan

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Golden goal í framlengingu.

Uppáhalds staður á Íslandi: Hvammstangi

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Hef skorað hvorki meira né minna en 4 mörk á mínum mfl ferli þannig það að skora mark gegn Stjörnunni í fyrra var frekar skemmtilegt.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Kannski ekki beint hjátrú en hlusta alltaf á sömu 2-3 lögin í bílnum á leiðinni í leik.

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist alltaf með stórmótum í handbolta og svo tennis af og til.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike phantom

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Var alveg vonlaus í myndmennt í grunnskóla.

Vandræðalegasta augnablik: Kannski það að togna í lærinu í Landeyjahöfn á leiðinni á pæjumót í 5. flokki. Fannst það soldið vandræðalegt at the time og svo er bara fáránlegt að togna þegar maður er 12 ára.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Kevin de Bruyne, Pedri og Declan Rice. Leikmenn sem ég lít mikið upp til og gæti vonandi lært eitthvað af yfir einni máltíð.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Deja og Mackenzie eru algjörir trúðar saman.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Held að Jónína og Berglind Freyja væru gott duo í Love Island.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Er íslandsmeistari í samkvæmisdansi.

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Fannst Katla María svolítið scary áður en hún kom í FH en hún er algjör drottning

Hverju laugstu síðast: Kannski að ég væri löngu byrjuð á einhverju verkefni sem ég var alls ekki byrjuð á (er með rosalega frestunaráráttu).

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaup án bolta eru aldrei skemmtileg.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Mikel Arteta hvað hann setur mikið gel í hárið á morgnana. Held það sé vel yfir öllum mörkum.

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Vona að sjá sem flesta á vellinum í sumar, það verður alvöru veisla!!
Slapp
banner
banner