Fotbolti.net
24.05.04 - 12:14
Hafliði Breiðfjörð

Queiros rekinn - Camacho tekinn við (Staðfest)

Queiros rekinn - Camacho tekinn við (Staðfest)
Canon
Carlos Queiros þjálfari Real Madrid var í morgun rekinn frá félaginu eftir aðeins eitt ár í starfi og Jose Antonio Camacho fyrrum þjálfari spænska landsliðsins var ráðinn í hans stað. Queiros sem var á síðustu leiktíð aðstoðarstjóri hjá Manchester United tók við liðinu í júní eftir að Vicente del Bosque var rekinn þrátt fyrir að hafa skilað tveimur deildartitlum og tveimur Evróputitlum á 3,5 árs veru sinni við stjórn.
,,Við komumst að sameiginlegu samkomulagi við Carlos Queiroz um að hann haldi ekki áfram hjá félaginu." sagði Florentino Perez forseti Real í morgun.

,,Við höfum einnig ákveðið að ráða Camacho sem nýjan þjálfara Real Madrid. "

Camacho hefur verið þjálfari Benfica síðan í nóvember 2002. Benfica féll út úr UEFA Cup í 16 liða úrslitum fyirr Inter Milan fyrr á árinu og varð í öðru sæti deildarinnar heima fyrir auk þess að vinna Porto 2-1 í úrslitum bikarsins.

Real Madird var með 8 stiga forystu í deildinni í byrjun mars en þá byrjaði gengið að hraka, liðið féll úr Meistaradeildinni í byrjun apríl eftir tap gegn Monaco og endaði svo í fjórða sæti deildarinnar sem lauk í gærkvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.