24.05.04 - 16:21
Hafliði Breiðfjörð
Magath tekur við Bayern Munchen. (Staðfest)




Felix Magath hefur verið ráðinn næsti knattspyrnustjóri Bayern Munchen. Magath sem er 50 ára gamall stjórnaði Stuttgart á leiktíðinni sem er að ljúka en hann tekur nú við af Ottmar Hitzfeld sem var rekinn frá félaginu á dögunum. Magath gerir þriggja ára samning við félagið og mun taka formlega við starfinu 28. júní næstkomandi. Bayern snéru sér til Magath eftir að hafa endað í öðru sæti á eftir Werder Bremen í Bundesligunni og að hafa fallið snemma út úr Meistaradeild Evrópu þetta árið. Magath hafði ætlað að taka við liðinu eftir næstu leiktíð en nú hefur því verið flýtt.
