Fotbolti.net
24.05.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson

Chris Kirkland til Sheffield Wednesday (Staðfest)

Chris Kirkland.

Chris Kirkland.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Chris Kirkland mun ganga í raðir Sheffield Wednesday þegar samningur hans hjá Wigan rennur út í sumar.
Þessi fyrrum leikmaður Liverpool og Coventry hefur hjá Wigan í sex ár, en hann hefur lítið spilað undanfarin tímabil þar sem Ali-Al Habsi hefur eignað sér markvarðarstöðu liðsins.

Kirklandi náði á sínum tíma að spila einn landsleik fyrir England og mun hann nú væntanlega verða byrjunarliðsmaður á nýjan leik.

Samningur hans hjá Sheffield er til tveggja ára.

Sheffield verða nýliðar í Championship deildinni á næstu leiktíð þar sem félagið tryggði sig upp um deild í síðasta leik leiktíðarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.