24.06.04 - 07:46
Hafliði Breiðfjörð
Julian Gray í Birmingham (Staðfest)




Birmingham halda áfram að sanka að sér leikmönnum fyrir næstu leiktíð og í gær var samið við miðjumanninn Julian Gray frá Crystal Palace. Félagið staðfesti þetta í gær en leikmaðurinn spilaði undir stjórn Steve Bruce er hann stjórnaði Palace í fimm mánuði árið 2001. Gray skrifaði undir þriggja ára samning. Birmingham endaði í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en þeir hafa þegar samið við Emile Heskey frá Liverpool, Muzzy Izzet frá Leicester og eru langt komnir með samning við Jesper Grönkjær frá Chelsea.
