Fotbolti.net
24.07.04 - 14:58
Elvar Geir Magnússon

Maresca til Fiorentina (Staðfest)

Maresca til Fiorentina (Staðfest)
Canon
Ítalska liðið Fiorentina hefur keypt miðjumanninn Enzo Maresca frá Juventus. Maresca var sterklega orðaður við enska liðið Aston Villa fyrr í þessum mánuði en ákvað að vera áfram á Ítalíu. Þessi 24 ára leikmaður var ekki í áætlunum nýja þjálfara Juventus, Fabio Capello.
Þá hefur Angelo Di Livio náð sáttum við stjórnarmenn Fiorentina og ætlar að leika áfram með félaginu.

Kaupverð á Maresca ekki gefið upp en það er líklega um 1,5 milljónir punda. Hann skrifaði undir samning til ársins 2008. Í öðrum fréttum af félagaskiptum á Ítalíu er Lecce var að fá Souleymane Diamoutene lánaðan frá Perugia og nýliðar Livorno að kaupa miðjumanninn Nicolas Cordova frá Bari.

Fleiri fréttir úr ítalska boltanum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.