Fotbolti.net
24.07.21 - 20:50
Victor Pálsson

Klopp býst ekki við Van Dijk og Gomez á fimmtudag

Klopp býst ekki við Van Dijk og Gomez á fimmtudag
Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, býst ekki við að þeir Virgil van Dijk og Joe Gomez spili næsta leik liðsins gegn Hertha Berlin.
Þetta staðfesti Klopp við blaðamenn í gær eftir að Liverpool vann 1-0 sigur á Mainz í æfingaleik.

Gomez og Van Dijk misstu af miklu á síðustu leiktíð vegna meiðsla en hafa æft með liðinu á undirbúningstímabilinu.

„Það kæmi verulega á óvart, því miður. Þeir líta þó mjög vel út," sagði Klopp eftir sigurinn í gær.

Óvíst er hvort leikmennirnir verði orðnir klárir í slaginn er Liverpool hefur leik í ensku úrvalsdeildinni um miðjan ágúst.

Klopp vildi ekki gefa mikið upp en bjóst alls ekki við því að þeir myndu spila næsta leikinn sem er í Austurríki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.