Fotbolti.net
24.08.04 - 09:10

Carrick til Tottenham (Staðfest)

Carrick til Tottenham (Staðfest)
Canon
Tottenham hafa gengið frá kaupunum á Michael Carrick leikmanni West Ham. Hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í morgun en Carrick var mjög eftirsóttur í sumar.
Frank Arnesen yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham sagði um Carrick, sem leikið hefur yfir 150 leiki með West ham og spilað tvo landsleiki fyrir England: Michael er mjög hæfileikaríkur enskur leikmaður sem við erum mjög ánægðir með að hafa samið við, sérstaklega miðað við ungan aldur hans.

Hann hefur góða tækni, getur sent boltann og leikið kanta á milli. Með kaupunum á honum höfum við mjög sterka miðju. Mikil samkeppni ríkir um stöður sem er nokkuð sem allir topp klúbbar þurfa að hafa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.